Barnaverndartilkynning fyrir almenning

Tilkynning til barnaverndarþjónustu Múlaþings (Múlaþing, Vopnafjarðarhreppur og Fljótsdalshreppur) þegar ástæða er til að ætla að barn búi við óviðunandi uppeldisaðstæður, verði fyrir áreitni, ofbeldi eða stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu. (skv. 16. gr. barnaverndarlaga)

Samkvæmt barnaverndarlögum er hverjum þeim sem hefur ástæðu til að ætla að barn búi við ofbeldi eða vanrækslu skylt að tilkynna það til barnaverndarnefndar. Einstaklingar yngri en 18 ára teljast börn. Lögin eiga einnig við um ófædd börn t.d. ef þeim stafar hætta af vímuefnaneyslu móður eða af ofbeldi sem móðir verður fyrir.

Tilkynnandi skal í öllum tilfellum segja til nafns og að auki gera grein fyrir netfangi og símanúmeri ef þörf er á frekari upplýsingum. Óski tilkynnandi nafnleyndar hafa starfsmenn barnaverndar aðeins upplýsingar um tilkynnanda en ekki sá sem tilkynnt er um.

Ef málið þolir ekki bið skal hafa samband símleiðis við 112. Skrifstofutími er mánudaga til fimmtudaga frá kl. 8.00-15.30 og föstudaga frá kl. 8.00-13.30 og hægt er að fá samband við barnaverndarþjónustu í gegnum þjónustuver í síma 470 0700. Bakvakt barnaverndar sinnir neyðartilvikum utan skrifstofutíma.

Ef barnið er í bráðri hættu skaltu hafa samband við 112

Upplýsingar um tilkynnanda

Ekki er brugðist við tilkynningum þar sem ekki er hægt að sannreyna tilkynnanda.


Nei
 

Upplýsingar um barn


Já, búið er að hafa samband við 112
Nei

Ef tilkynnanda er kunnugt um það.

 

Ástæða tilkynningar

Athugið! Sé grunur um ofbeldi af hálfu náins aðstandanda skal ekki greina þeim eða forsjáraðilum frá tilkynningunni.


Vanræksla
Ofbeldi
Áhættuhegðun barns
Heilsa eða líf ófædds barns í hættu
Ekki viss


Í reitunum fyrir neðan er svo hægt að merkja við nánari lýsingu á vandanum.

Líkamleg vanræksla
Vanræksla varðandi umsjón og eftirlit
Foreldrar í áfengis- og fíkniefnaneyslu
Vanræksla varðandi nám
Tilfinningaleg vanræksla

Tilfinningalegt/sálrænt ofbeldi
Heimilisofbeldi
Líkamlegt ofbeldi
Kynferðislegt ofbeldi

Neysla barns á vímuefnum
Barn stefnir eigin heilsu og þroska í hættu
Afbrot barns
Barn beitir ofbeldi
Erfiðleikar barns í skóla, skólasókn áfátt