Tilkynning til barnaverndarþjónustu Múlaþings (Múlaþing, Vopnafjarðarhreppur og Fljótsdalshreppur) þegar ástæða er til að ætla að barn búi við óviðunandi uppeldisaðstæður, verði fyrir áreitni, ofbeldi eða stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu.
Samkvæmt barnaverndarlögum er hverjum þeim sem stöðu sinnar og starfa vegna hefur ástæðu til að ætla að barn búi við óviðunandi uppeldisaðstæður eða verði fyrir ofbeldi eða vanrækslu skylt að tilkynna það til barnaverndarþjónustu. Á það meðal annars um fagaðila vegna starfs síns annað hvort vinna með börnum reglulega, kenna þeim í leik-, grunn- eða framhaldsskóla eða hafa afskipti af börnum af og til. Samkvæmt barnaverndarlögum gengur tilkynningarskylda þessi framar ákvæðum laga eða siðareglna um þagnarskyldu viðkomandi starfstétta. Einstaklingar yngri en 18 ára teljast börn. Lögin eiga einnig við um ófædd börn t.d. ef þeim stafar hætta af vímuefnaneyslu móður eða af ofbeldi sem móðir verður fyrir.
Tilkynnandi skal í öllum tilfellum segja til nafns og að auki gera grein fyrir netfangi og símanúmeri ef þörf er á frekari upplýsingum.
Ef málið þolir ekki bið skal hafa samband símleiðis við 112. Bakvakt barnaverndarþjónustunnar sinnir neyðartilvikum utan skrifstofutíma.